Maður á ekki að hugsa um peninga ekki að tala um peninga heldur bara að eiga peninga!Jóhanna
Ég segi nú bara eins og Ilmur í áramótaskaupinu... Þetta eru alveg ótrúlega spennandi tímar!! en ég persónulega er mjög uggandi yfir ástandinu í þjóðfélaginu.. flestir eru mjög smeykir við þaðhvernig mótmælin eru að þróast en ég er meira stressuð yfir efnahagnum... það er ekkert skrýtið að fólk skuli verða reitt þegar lítið sem ekkert gerist og allavega gerist ekkert þannig að veskið mitt finni fyrir því.. maður rétt nær að laga patrolinn þegar hann fær kvef.. Horfði á forsætisráðherra í kastljósi áðan og langaði að henda eggjum í fína flatskjáinn minn! alltaf sama djöfulsins rausið aðspurður um hvort að slitna væri upp úr stjórnarsamstöðunni "uuu.. nei það held ég ekki" og svo rausaði hann eitthvað áfram en ég nennti ekki að horfa meira heldur skipti um stöð og horfði á bráðavaktina í staðinn, þeir eru þó allaveg að gera eitthvað!
Annað sem mér finnst frábært við þessa kalla er að formaður landssambands lögreglumanna fór á fund með forsætisráðherra og útskýrði fyrir honum að fjársvelti til lögreglu væri að gera útaf við embættin.. ekkert kom út úr þeim fundi. En eins og alþjóð veit er nóg að gera hjá lögreglu þó að flestir lögreglumenn myndu þiggja að vera hinum megin við víglínuna og grýta alþingishúsið með eggjum og brauðhleifum!
Það verður spennandi að sjá hvað gerist á næstu dögum... En annað sem mér leiðist næstum meira en stjórnmálamenn eru peningar hjá félagasamtökum. Nú er ég starfandi í slökkviliði, björgunarsveit og nokkrum öðrum félagasamtökum. Og það er alltaf sama peningaplokkið, og það er ekki sparað í útlátum sem mega í rauninni "bíða" heldur er sparað á félögum, ó já það er byrjað á því að skera niður styrki til námskeiða eða félaga á einvhern annan hátt.... og ef eitthvað er farið, eitthvað er gert þá er hægt að tuða og væla yfir peningum... auðvitað eigum við að halda í peningana en alltaf þarf að eyða peningum og er þeim ekki ágætlega varið í fólk sem sinnir sinni vinnu eða áhugamáli af kappi.. held að það sé mikilvægara á þessum tímum að við hugsum um hvort annað og gerum eitthvað uppbyggjandi heldur en að sitja á nokkrum verðlausum krónum !
Já helvítis fokking fokk!
Jóhanna fjósastelpa ??Jóhanna
Það er ekki alveg búið að vera á dagskránni að blogga eins og glöggt má sjá ;) búið að vera helling af öðru sem búið er að ríða yfir þjóðfélagið og þar var mitt heimili ekki skilið útundan! það eru taldar krónurnar og ekki veit ég hvar öll þessi ósköp enda !! en eins og er þá tussast þetta eins og skagfirðingarnir segja ;) en ef einhver veit um atvinnu fyrir gamalt ónýtt ælandi hró eins og mig ! þá endilega látið mig vita !!
Draumastarfið þessa dagana er að gerast bústýra hjá einhverjum gömlum kalli hérna í nágrenninu og fara bara í fjós ! fínt að mæta kvölds og morgna að tutla beljurnar ! finnst fátt notalegra heldur en að mæta í fjós eldsnemma á morgnanna og spjalla við kusurnar ! búin að sakna þess síðan í Helli hérna í gamla daga ! :)
Annars er allt gott héðan úr Heiðinni! jólin voru frábær og fékk ég hreint út sagt frábærar jólagjafir!sú besta var auðvitað allt hestadótið því nú styttist í að ég þurfi að temja hestinn sem ég fékk í haust ;)
En gleðilegt nýtt ár á ykkur öll og megi 2009 verða þolanlegt !!!
Hressleiki ! :)Jóhanna
Já ég er bara hress :) fór að "breinstorma" um hvernig gott blogg myndi vera... ég er búin að komast að niðurstöðum um það að gott blogg eru einskis nýtar upplýsingar um persónur... ég er búin að ákveða að skrifa eitt einskis nýtt blogg með einskisnýtum upplýsingum um mig !Þegar ég fór í svona sjálfskoðun þá sá ég hversu bilað eintak af fólki ég er ... sjáið bara..
ég t.d stíg aldrei á bremsurnar í kömbunum.. þetta er bara prinsipp !
ég kalla kvensköp bílskúr... og finnst ef út í það er farið mjög sniðugt að kalla kynfæri bílanöfnum.. s.s Ladan ! og svo er það gírstöngin... þannig að stundum er ladan sett í þriðja gír og inn í bílskúr... svo er það bara handbremsan...
Mér finnst dömubindi ömurlegt hlutskipti og ef ég fer lengra þá finnst mér eggjastokkar ennþá leiðinlegra fyrirbæri !! hugsið ykkur hlutverk konunnar að drepast ekki bara úr túrverkjum ! nei bætum við egglosverkjum líka!! frábært..
Mér finnst hundar skemmtilegri heldur en fólk.. en mér finnst margt hundafólk ekki skemmtilegt... og mér finnst óþekkir hundar leiðinlegri heldur en leiðinlegt fólk!
Það má ekki undir neinum kringumstæðum snerta á mér hnén...
Ég borða ekki tómata... finnst þeir samt girnilegir..
það má ekki segja mér að slaka á... ég er SLÖK en ég hinsvegar nota þetta óspart á aðra...
Ég þjálfa börn eins og hundana mína.. ég heimta hámarksárangur og vil fá augnkontakt þegar ég heimta það!
Ég er mjög góður jeppabílstjóri, ég er mjög góð að keyra í snjó og hálku sem og í góðu veðri og góðri færð... samt einvhernveginn skemmast alltaf björgunarsveitajepparnir ef ég fer í útkall á þeim ????
Ég þoli ekki föt af Steinari út um allt .... ef nánar er skoðað þá eru buxurnar hans bara á stólnum inni í svefnherbergi en restin er af mér...
Ég hef skv fegurðarstöðlum góðan "potential" í að vera fegurðardrottning... ég er með löng augnhár, lítil og nett eyru, há kinnbein, lítið nef, fallegt hár, vöðvuð ekki horuð... samt er pakkinn ekki svona... meira út í svona sveitajask sem átti skv. persónu að vera rauðhærð hörkutussa sem vissi ekki hvað bursti er né hárgreiðslustofa og plokkun og litun er ... ekki skrýtið að maður lendi í tilvistarkreppu með sjálfa sig :)
Vona að þið hafið notið þessara einskis nútu upplýsinga :D
Laufskálarétt :)Jóhanna
Já :) ég skellti mér í Laufskálaréttina þetta árið og varð svosum ekki fyrir vonbrigðum frekar en fyrri ár. Að vísu var þetta aðeins öðruvísi en vanalega... ég hitti nánast ekkert af "mínu" fólki. Hringdi í Möggu í Glaumbæ, nei nei þá var hún í REYKJAVÍK!! hvað í ansk á það að þýða ! nú hún fékk sungna klámvísu inn á talhólfið sitt og hringdi daginn eftir miður sín yfir að hafa ekki komið = markmiðinu náð ;) en svo hitti ég Loga á ballinu og Tobba! meira sá ég ekki ! þannig að það vantaði svona 15 stykki af fólki sem maður hittir ALLTAF á Laufskálaréttaballi nema þetta árið....Já tímarnir breytast og mennirnir með... flestir eru komnir með börn og buru og þá er víst ekkert skemmtilegt að fara á ball...... ???
En þess í stað voru 2 stuðboltar með mér sem klikkuðu ekkert á tjúttinu ! Ingibjörg og Halla voru í bananastuði og ég skemmti mér konunglega með þeim :) ég ætlaði að taka laugardaginn með trompi og mitt eina markmið var að verða fyrir, undir og eftir áhrifum áfengis en annað kom á daginn... ég byrjaði að drekka um hádegi í réttinni og drakk og drakk og drakk... ekkert gerðist... hitti Sigga í Víðinesi og sötraði með honum heillengi 50% viskí og ekkert gerðist... fór heim í Ásgarð borðaði jú og drakk.. svo leið á kvöldið og ég og Ingibjörg fórum í bacardi og ... ekkert gerðist.. fór á ballið og drakk og jú jú ekkert gerðist... svo fékk ég opal skot :) og ..... ekkert gerðist þannig að ég fór nánans edrú heim og var til friðs, sem var svo sannarlega ekki markmið helgarinnar!! en hún Ingibjörg kom með útskýringuna fyrir þessu....
ég er víst orðin of feit til að finna á mér....
já fínt!
Algert andleysi....Jóhanna
Ég veit ekki hvað í andskotanum ég á að skrifa hérna.. Ég er alveg hjartanlega sammála þér Bríet með færsluna áðan, svo fór hún líka í vesen og enginn skyldi neitt... en ég heyrði líka málshátt einu sinni í gamla daga sem hljómaði þannig að maður ætti að þegja frekar en að ... æi.. man ekki rest.. en ég hef svo ótrúlega ekki neitt að segja, það er líkt og eftir bloggfærslur á borð við Suðurlandsskjálfta og það að heimili manns sé í rúst sé allt annað orðið "ekkifréttnæmt" og taki því ekki að skrifa né tala um það. Nú og það sem öðrum finnst fréttnæmt og ég hef einhverja vitneskju um segji ég ekki frá þannig að er maður þá ekki kominn í þrot?Ætli ég sé komin á breytingarskeiðið, orðin pirrípú og vó.. þegar ég hugsa um það þá er mér ótrúlega oft heitt..........
Verð að fara... samfélagið í nærmynd á rás2 er að byrja....
Hæ hó jibbí jei það er komin 14 júlí !Jóhanna
Já og það þýðir að það er kominn tími á blogg!! sumarfríið er búið að vera alveg hreint ótrúlega skemmtilegt ! við hjónaleysin erum búin að keyra eina 5400 km um ísland!! ekki slæmt það ! það var veeeerulega skrýtið og ég er ekki frá því að það hafi verið frekar pirrandi bara að þurfa að stilla vekjaraklukkuna á 05:50 eftir ein og hálfsmánaðar frí... en svona er þetta maður þarf víst að vinna fyrir salti í grautinn....En eitt sem ég er búin að vera að hugsa er brúðkaup.. ekki það að ég sé að fara að halda brúðkaup heldur er mér boðið í brúðkaup sem er frábært og gott og blessað og ekkert út á það að setja... en orðið brúðkaup finnst mér skrýtið... BRÚÐ kaup, er það þá kallinn sem kaupir brúðina.. ekki man ég eftir að pabbi hafi borgað neitt sérstaklega fyrir mömmu ekki nema þá að leyfa henni að þrífa og eignast börn... eflaust er þetta komið úr fyrndinni þegar menn fengu bara kellingarnar... en þá kemur að öðru.. heimanmundur það fylgdi heimanmundur með kellingunni... þannig að kallinn fékk ekki bara konu og þurfti ekkert að borga heldur græddi hann á henni líka... hvernig í ósköpunum kom þá orðið brúðkaup til sögunnar ætti orðið ekki frekar að vera : "konugræðingur" eða eitthvað í þá áttina... æ ég hreinlega veit það ekki... hjónavígsla er auðvitað til en það er ekkert skemmtilegt orð...ég skil bara hreinlega ekki þetta brúðkaup...
ætti ég þá að skilja eða ekki skilja... væri ég þá skilin eða gift?
Sólbrenndur í ermalausum booool:DJóhanna
En Sleggjan er farin í sumarfrí ! Áfangastaður :ÍSLAND !!
Bloggið verður skilið eftir heima á meðan.... blogg hefst aftur um miðjan júlí.....
Góðar stundir :D
Það kom að því...Jóhanna
Gærdagurinn var ótrúlegur og ég get sagt ykkur það að ég er ein taugahrúga... jörðin skelfur ennþá og ég kippist við í hvert einasta skipti sem drunurnar byrja og veggirnir hristast... Ég var stödd í Reykjavík þegar skjálftinn reið yfir og var ég snögg að vippa mér heim og sinna útköllum sem voru orðin 5 þegar ég var að lenda á Hellisheiði...
það sem að kom mér mest af öllu á óvart er hreinlega ég sjálf... sleggjan ( virkar rangnefni þegar maður kippist við í hvert einasta skipti sem að kemur kippur) ég er nett "nojuð" og ósjálfrátt þá bregður mér mikið þegar það koma kippir! það er ótrúlegt að upplifa það að ég næ ekki að stjórna mínum eigin líkama... skynsemin er róleg hjá mér og veit ég að það verður allt í lagi, en það er líkt og hugurinn sé ekki sammála og er drullustressaður.. já ég veit að þetta hljómar hálf bilað en þetta á nú allt eftir að lagast ! ég næ eflaust að hífa hjartað upp úr buxunum um helgina þegar ég verð komin í sumarfríið mitt :)
ég hugsa að þetta sé svona björgunarmanna sindróm... maður dettur í gír og hjálpar hverri einustu sálu sem maður sér og húsum þeirra en gleymir sjálfum sér í allri yfirvegunni fyrir hönd annarra... ég til að mynda var komin í Hveragerði 20 mín eftir að skjálftinn reið yfir en komst ekki heim til mín fyrr en um 8 leytið um kvöldið ! þá rétt náði ég að kíkja inn, ná mér í eitt stykki sjokk yfir því að allt innbú heima hjá mér er ónýtt þannig að varla sást í gólf... nú þá var ekki annað að gera nema geyma sjokkið og halda áfram að sinna útköllum... var farin í rúmið um hálf tvö leytið en náði ekki dúr á auga alla nóttina sökum eftirskjálftanna.. svo tók næsti dagur við sem var að vísu rólegri en útköllum þurfti að sinna engu að síður og var ég mætt á næturvakt klukkan sjö um kvöldið...
eins og ég segi þá hugsa ég að hugur minn nái aðeins að róast þegar búið verður að taka til og þegar ég get verið heima hjá mér og spjallað við fjölskylduna.. það er ekki gott að vera í vinnu þegar hugurinn er heima... en eins og Steinar sagði, þá sagði hann að á næsta fjölskyldu fundi ætlaði hann að taka fyrir að við okkur skyldi ekki detta í hug að drasla svona til aftur :) ég get sett inn einn lítinn broskarl hérna en mínar kinnar eru ótrúlega stífar þessa stundina... (enda þungt að lyfta stórum kinnum ;)
Ég vil samt minnast á eitt enn og það eru allir þeir sem sendu mér skilaboð eða hringdu til að athuga með mann... það er á svona stundum sem maður sér hverjir eru vinir manns og hugsa til manns ;)
þið vitið hver þið eruð bara eitt stórt *knús* til ykkar !!
Já sleggjan ógurlega biður að heilsa ykkur og gangi okkur öllum vel að taka til í húsi sem og huga ;)
Myndir koma seinna ;)
þessi bleika týpa....Jóhanna
Ég var spurð að því um daginn af ofþurrkaðri ljóshærðri, svangri ljósabekkjapíu hvort ég væri ekki ótrúlega "BLEIK" týpa!! ööööööhhhh... ég hélt nú EKKI!! og ég, löggu, björgunarsveita ofurpían svaraði um hæl! "ég á sko ekki eina !! bleika flík í skápnum hjá mér! og NEI! ég er sko ekki bleik týpa...
eftir að mesta bræðin var runnin af mér og klígjan var hætt eftir að hafa hitt þessa leiðindapíu fór ég aðeins að hugsa... og þá fór ég að muna eftir nokkrum hlutum sem eru til í kringum mig heima... Ég hafði víst gleymt að segja henni frá bleika kjólnum mínum... nú og ekki má gleyma skærbleiku náttbuxunum mínum jú eða inniskónum mínum sem geta víst ekki orðið mikið bleikari, ég gleymdi líka að nefna bleika bolinn minn sem ég nota reglulega og tala nú ekki um öll nærfötin sem eru til í öllum afbrigðum af bleiku og skærbleiku í bland við nærfötin sem eru bæði svört og bleik ... já og svo á ég víst líka bleika flíspeysu frá 66 N sem ég nota mjög oft ég minntist heldur ekki á bleiku rúmfötin sem ég á eða bleik fjólubláu hliðartöskuna mína sem ég lét ekki frá mér á tímabili... mig hrillti við þessari tilhugsun þannig að þá hélt ég áfram að hugsa... ég nota bleikt ilmvatn, ég á alltaf til bleikar baðbombur og sjampóið sem ég nota er bleikt... (með rósailm) ég á body butter, og hvernig er það á litinn! jú jú, það er bleikt líka. Ég á líka bleikt body spray sem ég nota oft með bleika body butterinu... ekki nóg með það, ég get ekki skemmt mér nema ég fái bleikan drykk og þá helst rósavín! ég bað kallin um að fara í ríkið um daginn og koma mér á óvart! og hann þekkir sko sína konu út og inn! hann keypti alla bleiku gosbjórana sem hann fann! og ég var himinlifandi!! :D:D
.... nei! ég er sko ekki bleik týpa.....
Prinsinn er búinn að læra að synda :)Jóhanna
Mér finnst alltaf jafn gaman að spá og vesenast í hundunum svona eins og þeir sem þekkja mig vita :)Ég fór að hlæja að því að þegar Morris var hvolpur þá var honum rosalega illa við vatn og vildi helst ekki koma nálægt því!! nú við ofurhundaþjálfararnir ég og Drífa (sem er alvöru hundaþjálfari og ekki fúskari eins og ég ;) ákváðum að reyna að fá Morris til að líka við vatnið ! nú aðferðin var mjög hefðbundin... hann var tekinn varlega upp í fangið og hent út í á ! svo þurfti hann að synda smá spotta aftur í land og fékk klapp og hrós þegar að bakkanum var komið. Nú hann þurfti ekki frekari aðstoð eftir þetta !!:)
Við fórum á æfingu núna á sunnudaginn, ég alveg skítþunn eftir djamm kvöldið áður, en ekki lætur maður það stoppa sig og við héldum á æfingu í rigningu og roki!! en dagurinn var alveg frábær. Náðum að taka stórar leitir og enduðum á hlýðniæfingum með alla hundana og svo fengu þeir að skola af sér í ánni inni í Reykjadal! ég náði myndbandi af Morris þegar hann stekkur í hylinn... eins og þið sjáið þá er honum ekkert rosalega illa við vatn.... !! ;)
http://www.youtube.com/watch?v=S7rZVandZxc
