Prinsinn er búinn að læra að synda :)Jóhanna
Mér finnst alltaf jafn gaman að spá og vesenast í hundunum svona eins og þeir sem þekkja mig vita :)Ég fór að hlæja að því að þegar Morris var hvolpur þá var honum rosalega illa við vatn og vildi helst ekki koma nálægt því!! nú við ofurhundaþjálfararnir ég og Drífa (sem er alvöru hundaþjálfari og ekki fúskari eins og ég ;) ákváðum að reyna að fá Morris til að líka við vatnið ! nú aðferðin var mjög hefðbundin... hann var tekinn varlega upp í fangið og hent út í á ! svo þurfti hann að synda smá spotta aftur í land og fékk klapp og hrós þegar að bakkanum var komið. Nú hann þurfti ekki frekari aðstoð eftir þetta !!:)
Við fórum á æfingu núna á sunnudaginn, ég alveg skítþunn eftir djamm kvöldið áður, en ekki lætur maður það stoppa sig og við héldum á æfingu í rigningu og roki!! en dagurinn var alveg frábær. Náðum að taka stórar leitir og enduðum á hlýðniæfingum með alla hundana og svo fengu þeir að skola af sér í ánni inni í Reykjadal! ég náði myndbandi af Morris þegar hann stekkur í hylinn... eins og þið sjáið þá er honum ekkert rosalega illa við vatn.... !! ;)
http://www.youtube.com/watch?v=S7rZVandZxc
Athugasemdir
1
Krissa skrifar:
hvar og hvenær sem er
08. maí 2008 klukkan 21:23
2
Jóhanna skrifar:
Herðu ég er búin að finna geggjaðan veitingastað! hann heitir orange og er niðrí miðbæ! virkar mjööög spes og spennandi! ég hringi bara á þig við fyrsta tækifæri, Hafdís er oftast í fríi á sunnudögum, en ég verð upptekin núna þessa helgi...
lovjú :*
lovjú :*
09. maí 2008 klukkan 14:16
