Blóð, sviti engin tár og pólitík!Jóhanna
Ég hélt að hlaupa 2 kílómetra væri ekkert mál.... mistök ! ! það er meira en að segja það ! en þetta þarf ég víst að gera í næstu viku þar sem að inntökuprófið verður þá ! sjitturinn... en þetta er nú allt að hafast .. fyrsti hlaupatúrinn endaði reyndar með blóðnös og næstum því kvöldmatnum á gólfinu og þar sem að ég fékk þá snilldarhugmynd að hlaupa áður en ég færi að þjálfa , voru krakkarnir stanslaust að spurja " Jóhanna ! ertu ENNÞÁ þreytt! en allt hefst þetta nú og svo er bara að massaþetta og ef ég næ þessu ekki, þá er bara að reyna einu sinni enn eins og segir í laginu ;)
Það er bara ein tilkynning í viðbót og hún er handa ykkur þið þarna leiðinda sjálfstæðis og framsóknarfólk og tala nú ekki um samfylkinguna, til sjávar og sveita nær og fjær!
ÉG er orðin VINSTRI GRÆN ! nú fellum við ríkisstjórnina og komum reglu á klakann !
Jæja nú jæja látum karlinn hlæja...Jóhanna
Þá er maður búinn að jafna sig eftir liðna helgi sem var alger snilld :) Það kom ekkert smá mikið af fólki í afmæli og þakka ég þeim kærlega fyrir komuna ;) En toppurinn á kvöldinu voru að sjálfsögðu þegar Gunnhildur og Trausti, Helgi og Vala og Hrund komu og gáfu mér SLEGGJU :D engin smá snilld og daginn eftir var mér boðin vinna næsta sumar við girðingavinnu !. Já takk og aftur takk fyrir mig og allt það :) og Fanney og Logi, þarf að ræða við ykkur og helst hitta ykkur.. dadara... Svo komu Sóley og Elva alla leiðina frá Keflavík en metið áttu Ásta og Rósa sem komu alla leið að norðan :) bara snillingar, en eitt sakamál er enn óleyst, og það er HVAR endaði Hrund ? hún var ekki hjá mér og hún fór ekki heim með Helga og Völu og þeim... er hún ekki örugglega ennþá komin heim til sín :)
Best að fara að gera sig klárann fyrir næstu helgi, en það er þorrablót og ég ætla í RÍKIÐ !!

Aldurinn færist yfir :)Jóhanna
Þessi mynd er víst tekin fyrir 20 árum síðan ! ! 

Já aldurinn færist yfir og stórafmæli hjá mér og Snúllu eða SogS verður í kvöld, ég vona að flestir sjái sér fært að mæta og eiga skemmtilega kvöldstund með okkur :) En stal þessu hérna af síðunni hjá Pakkanum og fannst þetta eiga vel við í tilefni dagsins ;)
p.s er að senda góða strauma uppá Snæfellsnes, væri alveg til í að vera þar yfir helgina ;)
Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.
Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu.
Ég læt hugann reika.., en stundum yfirgefur hann mig.
Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.
Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.
Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.
Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur.
Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.
Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.
Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!
Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og : "Veistu, stundum bara gleymi ég að borða." Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, En ég hef aldrei gleymt að borða. Hvílík heimska: að gleyma að borða!
Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn, en henni er eiginlega alveg sama.
Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.
Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: að borða of mikið, kaupa það allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt. Er ekki í lagi með þetta lið? Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.
Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.

Já hvað get ég sagt ? :) ?Jóhanna
Takið eftir gullkorni dagsins : "Það er ekkert mál að kenna hundi að hugsa eins og maður! en það er mun erfiðara að kenna manni að hugsa eins og hundur" Mikið rosalega er ég sammála þessu en gullkornið á hann Halli Gísli í Hólum en þetta er úr smalahundabók sem hann las einhverntímann um sautjánhundruð og súrkál.
Já það er ekkert mál að kenna hundi að hugsa eins og maður (veit að sumir halda því fram að hundir hugsi ekki , en geymum það bara í smá stund :) Það er alveg ótrúlegt eftir að ég sparkaði í rassgatið á sjálfri mér og sinnti hundinum mínum af alvöru, þ.e meira heldur en grunnþarfir hundsins sem eru að fara út að leika einu sinni á dag og út til að gera þarfir sínar, þá hefur orðið gagnger breyting á hundinum, hann er 4ra mánaða kann allar helstu skipanir ásamt því að gelta að skipun koma þegar kallað er á hann. Nú eltir hann mig um allt, upp í traktor, svo er hann nánast búin að læra að hoppa að skipun og svo er þetta bara allt annar hundur, s.s snillingur :D þeir sem hafa hitt hann nýlega geta svo sannarlega staðfest þetta ;)
En að öðrum og alvarlegri málum. Ég var að hlusta á útvarpið um daginn og þar var sagt frá því þegar stelpa sótti um debetkort fyrir ömmu sína og setti svo mynd af sér í staðinn. Hún tók 500 krónúr útaf kortinu og hlaut eins árs skilorðsbundin dóm...... ! ! ! Barnaníðingur sem misnotaði 5 börn fékk fimm ára fangelsi. Það á ekki að þurfa að tyggja ofan í þessa helvítis alþingismenn hversu alvarleg barnamisnotkun er. Þau ættu þá að horfa á kastljós þáttin þegar tekið var viðtal við stráka sem sendir voru á Breiðuvík, 80 % af mönnunum sem voru þar eru á sakarskrá en þeir voru allir hrottalega misnotaðir, kynferðislega og ekki síst andlega. Það er alltaf jafn erfitt að reyna ! að skilja afhverju óréttlætið í lögum er svona mikið.... Og þeir setja nánast á sama stall að stelpa taki út 500 krónur og barnaníðingur sem misnotar 5 börn og fær fimm ára dóm, s.s eitt ár fyrir hvert barn ! eini munurinn er að stúlkan hlaut skilorðsbundin dóm.... ég veit ekki hvað þarf að gera, en eitthvað verður að gera....
Já svona getur þetta verið, en annars er ekki mikið að frétt, var að spá í að koma með aðra barnalands færslu um daginn minn, en ákvað að sleppa því.... ;) þannig að Tóti og Bríet þið getið bitið í ykkur ;) haha
En Skíma frá Kaðalsstöðum hlýtur þann heiður að vera mynd bloggsins :D en hún er ef þið sjáið það ekki að sýna hvar nebbinn er ;)

já og eitt enn !!! þetta er til þeirra sem er boðið í afmæli, en það þarf ekkert að gefa mér neitt ég þarf ekki neitt á nánast allt :) En ef einhver ætlar að þrjóskast við og gefa mér ekki (sem ég tek fram að þess þarf ekki, gaman væri ef fólk myndi bara láta sjá sig og eiga skemmtilega kvöldstund ) en ég vil helst og eiginlega alls ekki áfengi í afmælisgjöf takk fyrir.
Reynið svo að njóta lífssins ;)
Sumir dagar...Jóhanna
Jæja, þá er það komið á hreint, eftir 3 vikna þunglyndi og leiðindi yfir því að vera atvinnaus aumingji sem flakkar á milli bæja og hjálpar til við slátrun og tamningar, er ég komin í vinnu við tamningar og þá á ég við alvöru vinnu fæ pening og allt ! jess, svolítið síðan ég sá svoleiðis, rosa gaman að skoða þá, allskonar á litinn og með myndum á, vissi ekki að það væri til BLÁR peningur ! tjah, alltaf sér maður eitthvað nýtt :D En annars er svosum ekki mikið að frétta, dagurinn í dag var fínn og þó að flest ALLT hafi gengið á afturfótunum....
Vaknaði aaallllt of snemma til að keyra Eyrúnu heim til sín....
Gaf í hesthúsinu klukkan hálf níu, tókst ekki betur en svo en ég festi úlpuna í lásnum og reif hana.....
Rak hrossin til og frá og að SJÁLFSÖGÐU fóru þau ekki rétta leið þannig að ég þurfti að hlaupa út um allan Krók....
p.s .... það voru tömdu hrossin...
Gaf ormalyf og lenti í slag við nokkur tryppi sem endaði með aumu baki og klemmdum rasskinnum og ormalyfsslettum upp í þaki ! !
fór að gefa útigangnum, sem er ekki frásögu færandi nema það að helvítis rúllugreipin er andsetin og fer alltaf til baka frá stillingunni sem maður stillir, þ.e.a.s þegar ég set greipina í sundur þá sígur hún alltaf niður eða upp eftir því hvað andanum finnst sniðugt hverju sinni... nú svo hófst þetta nú allt saman og ég tussaðist út á tún og opna rúlluna.. neibb.. þá var hún snarúldin og orðin bleik á litinn þannig að hún þurfti að fara heim... förum nú ekki að grenja yfir því. Ég náði bara í seinni rúlluna og massaði þetta bara, nei... svo pompar undirlagið undir mér á túninu og valmetinn PIKK fastur... laglegt... nú ég náði að finna læsingarnar á tækinu og viti menn, ljósi punkturinn í þessu öllu saman var sá að ég komst upp ;) haha ;)
Já, hva er þetta ekki bara gott í bili ??? Lfið heil ;)
Elska ! ! þessa peyja :DJóhanna
Já íslenska mulningsvélin valtaði yfir frakkana í fyrri hálfleik og bakkaði yfir þá í seinni ! þvílik snilld.... Já elska þessa peyja... :DEn back to reality... Var að setja myndir inn frá frábærri ferð upp á Sólheimajökul núna um helgina, þetta var frábær ferð og gaman að hitta allt liðið og hvorki meira né minna en 24 hundar mættir með eigendum sínum. Við fórum þrjár saman á crúsernum mínum. Með 4 hunda, 2 risa hunda, og 2 í minni kantinum :) Og dótið fyllti bílinn þannig að við þurftum að sitja allar 3 frammí og halda á einum hundi.. frekar skemmtilegt allt saman :)
Annars er svosum ekki mikið að frétta nema það að ég er byrjuð að temja þangað til ég fæ alminnilega vinnu ! það verður bara kósý, en eitt hérna... mig vantar heimilsföng hjá þessu fólki :
Fanney og Rósa á Hólum
Stefanía á Hólum
Helgi og Vala í bænum
takk fyrir takk :D

Mynd dagsins af Drífu og Morris ;)
Nú er mér nóg boðið... ha ? hver er þetta...Jóhanna
Nú í dag sótti ég um 10 vinnuna mína..... ! ég er gjörsamlega að gefast upp á þessu anskotans atvinnuleysi, vissi að maður átti bara að halda áfram í skólanum þó að ég sé búin með 150 einingar ! ! úff... Spáið í því ! 10 störf og ekki E I N N ! tölvupóstur til baka ...jæja.. en þetta hlýtur nú að fara að bresta á.. .fjandinn hafi það.. ! er að hugsa um annaðhvort að gerast atvinnufyllibytta og staupa mig hérna á daginn til að fá yl í þessum skítakulda á milli þess sem ég er á hlaupabrettinu að ná upp þoli fyrir lögguprófið ! eða, gerast atvinnuatvinnuleysingi, gera gott úr þessu og banka bara upp á hjá fólki á morgnanna og spurja hvort ég megi ekki vinna daginn hjá þeim og fá mat í staðinn!!
.. .ég meina, þá verð ég allavega ekki svöng og get verið í leiðinni svona farandsögumaður, sagt sögur og fréttir á bæjum, jafnvel sungið ljóð fyrir fólkið í baðstofunni á kvöldin...
................ ég sver það.. ég fer að heyra raddir á næstu dögum ef ég þarf að vera aðra viku ein heima innilokuð með hundum....
Helgin liðin :)Jóhanna
Jæja, þá er helgin liðin og hún skilaði sínu. Fórum upp á Eyjafjallajökul með Flubbunum í samfloti við Dagrenningu á Hvolsvelli :) Það voru bara 3 hundar með í för að þessu sinni en það voru þeir Lúkas, Krummi og Morris. Allir stóðu þeir sig mjög vel. En Lúkas kom svo sannarlega á óvart!!! Vorum búin að grafa einn niður í holu og Krummi var búinn að streða við eina holuna í 15 mín þegar hann var búinn að finna, þannig að Krummi fékk smá pásu og vatn. Þá ákvað Drífa að senda Lúkas af stað og viti menn! Hann rataði á holuna og byrjaði að grafa !! :D frábær hundur þar á ferð !
ferðin gekk ekki áfallalaust fyrir sig, en einn patrol var affelgaður og Tacoman varð fyrir smávægilegum óþægindum! en það verður alltsaman lagað :) Nú annar sleðinn varð dótaður, en Kári náði að brjóta aðra stífunu.. .laglegt...!
En þetta var frábær ferð og bara gaman ! svo er það bara næsta helgi ! Mýrdalsjökull baby og þá hittir maður vestfirðingana jeiiiii :)

................... Já, Tacoman stóð sig bara vel :) ..........................
Leiðinleg blogg...Jóhanna
Gerði þau leiðu mistök að fara að flakka um á barnaland síðunum... það var viss sjálfspíning að lesa sum þessi blogg hjá eflaust frábærum mömmum sem fara einfaldlega á flug í lýsingum sýnum á börnunum... Hugmyndin af þessum síðum er frábær, gaman fyrir ættingja erlendis að sjá myndir reglulega af nýjum börnum í familíunni... en hverjum er ekki sama um lýsingar eins og þessar :...." Ísabella Sól varð 4 mánaða og 23 daga gömul í dag, um 3 leytið þurfti að skipta á henni og var hún búin að kúka.. dugleg stelpan loksins er maginn farinn að taka við sér :D ! svo um 5 leytið fór hún að gráta og var orðinn þreytt, þannig að hún fékk að fara í nýja vagninn sem pabbi gaf henni og fékk að sofa út í garði....... "
Bla bla bla :) mæli samt með að taka einn rúnt á barnalandi og tékka á þessu... soldið gaman, en tek það jafnframt fram að flestir eru nú heilbrigðir í blogginu ;)

Fór samt að hugsa hvernig væri ef blogg hjá mér yrðu eitthvað á þessa leið :
...." þurfti að ná í rúllu í hrossin í dag, tók Morris og Iðu með, Morris fékk að sitja frammí, en Iða á gólfinu. Svo fór ég á Selfoss, gaf Iðu og Morris harðfisk en ég fékk mér Kitkat..."
............... Nei held mig við hitt og vona að fólki líki það bara vel ;)
Já lömbin mín :DJóhanna
Gleðilegt ár 2007 :) soldið skrýtið að það sé kominn janúar! enn skrýtnara verður að fara ekki í skólann! á eftir að fá vinnu .. en það hlýtur að fara að bresta á :DÁramótin voru snilld:) hef ekki skemmt mér svona vel í laaangan tíma :) Hafdís er náttlega snillingur sem og allir sem ég hitti :) það var bara snilld að hitta Sóldísi :) hún er nú meiri stuðboltinn :) Rakel er ávallt hress og það var bara gaman að Hitta Laufey þó að það hafi verið stutt :D skutluðum svo skötuhjúunum Guðna og Guðný heim... þá var klukkan að nálgast 7 og sleggjan orðin alveg sigruð ....:)
Annað skemmtilegt er að ég er búin að endurheimta hann Morris minn :D nú er heimilið aftur orðið í hers höndum, kötturinn upp á skápum, Iða öfundsjúk og tekur allt dótið frá Morris þannig að nú er hún alltaf með eitthvað drasl upp í sér, og það hefur aðeins bæst í hraðann hjá þeim svarthvíta þarna fyrir westan og sér maður núna svona grátt strik hlaupa framhjá manni öðru hverju... (allan daginn) verð að fara að drífa hann upp á jökul og láta hann vinna ;)
Læt hérna fylgja myndir frá áramótunum fyrir rauðvínið ;);)


og rétt byrjaðar í rauðvín ;)
Takk fyrir frábært kvöld ;)
