Áriđ 2006Jóhanna

Annáll ársins og eftirminnileg atvik :)

Það er við hæfi á seinasta degi ársins að nefna helstu viðburði ársins , góða og slæma:)

Janúar og þar fram eftir götum er alltaf óspennandi, skólinn nýbyrjaður, það er kalt og lítið að gerast :), afmælið mitt var í febrúar og 19 ára aldurinn er alls ekkert spennandi eins og flestir sem orðnir eru 19 ára kannast við !
  Skólinn kláraðist þá önnina með glans og þá var bara eitt í stöðunni ! og það var að skella sér norður í faðm þeirrar frábæru fjösldyldu í Glaumbæ, en þau hýstu mig allt sumarið og þurfti ég ekkert að gera í staðinn!!! aldrei verið heilt sumar þar sem ég þurfti ekkert að vinna fyrir utan vinnuna! svo hélt Gísli að hann væri að þræla mér út! mikill misskilningur þar á ferð :) Það var frábært að vera hjá þeim og gott að fá KJÖt :) svona oft :) Enn og aftur takk fyrir mig :)

Hápunktar sumarsins voru að sjálfsögðu nokkrir, við skulum sleppa því að minnast á þá slæmu, heldur rifja upp skemmtileg atvik líkt og heimsóknir að næturlagi, minnist þess best þegar Jóki kom allt í einu inni herbergi talandi um að hann gæti allveg keyrt heim, hann væri ekkert fullur, heldur væri það Jói Spritt sem væri fullur og þar sem þeir deildu nýra þá yrðu þeir báðir teknir fyrir ölvunarakstur ;) haha.

Sumarnótt á Landrover þegar við fórum í Grófargilsrétt að skoða graðhesta í miðriviku, bara snilld, Svo kenndi ég óla á Grófargili hvernig ætti að stjórna hesti, gekk allt saman vel, enda reiðmaður frá bernsku aldri ;)

Gráni og hestvagninn / léttikerran sló í gegn með Einar á Skörðugili við hliðina á mér :)

Ingimar á Ytra og fjölskylda stóðu fyrir sínu og margir skemmtilegir reiðtúrar þar að baki, eftirminnilegast er þegar riðið var í Brautarholt og Ragnheiður og Ingimar riðu á vaðið og duttu næstum af, enda sannast þá málshátturinn, Heimskum skal á foraðið etja :)

Reiðtúrar með ýmsum yfir Reykjarhólinn og stoppað á Hótelinu í Varmahlið til að fá sér bjór !

Ekki má gleyma Landsmóti! vá... það er kona í Noregi... (einkahúmor, orðinn veeerulega þreyttur ;) )

Svo gekk veturinn í garð með öllu tilheyrandi, þar á meðal skólinn.... Auðvitað sinnti maður honum af gamalkunni visku, s.s lítið og einbeitti ég mér því frekar að björgunarsveitastarfi, enda er það mun mikilvægara en menntum mín.. he hemm... :) allt gekk vel í hundunum til að byrja með, fékk hann Glanna minn sem var bara frábær en það endaði illa , stundum held ég að það sé álög á mér gagnvart dýrunum mínum. Hann þurfti að kveðja og ég sat eftir með sárt ennið.... En svona er þetta víst, þeir missa sem eiga.

Björgunarhundasveitin stendur að sjálfsögðu fyrir sínu, þar er maður búinn að eignast frábæra kunningja og allur hópurinn frábært fólk :) Ragga stóð eins og klettur við hliðina á mér þegar við kepptum í x-factor, bara skemmtilegt og geri aðrir betur, hún beið með mér í 11 !! klukkutíma :D , já og svo var það hún Kolla sem hringdi á 5 mín, fresti til að athuga hvernig gengi! gott að einvher hefur trú á manni :) Takk þið báðar :* Svo fóru Ragga og Maurice með mér á Hæl í Borgarfirði að skoða hvolp, Maurice benti á einn og sagði mér nánast að velja þennan. Nú hann varð fyrir valinu og heitir Morris ;)

Annað vil ég minnast á og það eru dauðsföllin sem urðu á þessu ári, um páskana gerðist sá atburður að frændi Birnu lést í vinnuslysi ungur að aldri og lét eftir sig þrjár litlar stelpur. Ég votta Birnu og allri fjölskyldu hennar samúð mína.

Bílslys voru tíð á árinu og nú rétt fyrir jól lést lítil 5 ára stelpa í bílslysi og bróðir hennar aðeins eldri er lamaður og á langa sjúkrahúsvist fyrir höndum.

Skugga setti á Björgunarhundasveitina þegar dóttir Elínar lést aðeins 24 ára gömul, ég votta  fjölskyldu hennar samúð mína. Það á enginn að lifa af börnin sín, megi Guð gefa þeim styrk.

Að lokum vil ég minnast allra sem eiga um sárt að binda um jól og áramót, það er ekki alltaf gleði á þessum tímum. Annars vil ég óska öllum Gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári :D

.... Þó að þessi texti eigi við hunda, þá finnst mér þetta passa líka við þá sem við hlökkum til að hitta þarna uppi þegar við förum :D

Regnbogabrúin


Hérna megin við himnaríki er staður sem kallast Regnbogabrúin

Þegar dýr sem hefur verið sérstaklega nákomið okkur deyr þá fer það til Regnbogabrúarinnar. Þar eru engi og hólar fyrir alla þessa sérstöku vini okkar þar sem þau geta hlaupið og leikið sér saman. Þar er nægur matur, vatn og sólskin og vinum okkar er hlýtt og líður vel.

Öllum dýrum sem hafa verið veik og gömul fá heilsuna og kraftinn aftur og þau sem voru meidd og örkumla eru gerð heilbrigð aftur eins og við munum eftir þeim í draumum okkar þegar fram líða stundir. Dýrin eru hamingjusöm og sátt, fyrir utan eitt, þau sakna sérstaks vinar sem varð eftir hinum megin.

Þau leika sér öll saman en sá dagur kemur að eitt þeirra stoppar og horfir í fjarska. Björtu augun eru einbeitt; ákafur líkaminn titrar. Allt í einu er hlaupið frá hópnum, á harðastökki yfir grasið, fæturnir hreyfast hraðar og hraðar.

Það hefur sést til þín og þegar þið, sérstöku vinirnir hittist loksins þá fallist þið í faðmalag við gleðilega endurfundi og þurfið aldrei að skiljast að aftur. Hamingju kossar rigna yfir andlit þitt; hendur þínar strjúka ástúðlega yfir höfuðið á honum og þú lítur enn einu sinni í græskulaus augu hundsins þíns, svo langt síðan hann hvarf úr lífi þínu en aldrei úr hjarta þínu.

Þá farið þið yfir regnborgabrúnna saman...




Jólakveđjur !Jóhanna

Gleðilega Hátíð Brosandi

Þetta er seinasta Bloggið áður en ég fer út :) Ég efast um að ég nenni að blogga þegar ég ligg í karabíska hafinu í sólbaði í 27 stiga hita ... ;) En svo er annað, þannig að vinir mínir og kunningjar viti, þá ætla ég ekki að senda nein jólakort í ár og gef engum jólagjafir og vil þar af leiðandi engar jólagjafir sjálf! :) ef þið hafið óendanlega þörf fyrir að gefa mér eitthvað, sem ég stórlega efast um, komið  þá frekar í heimsókn til mín eftir áramót :)


 Annars vil ég óska öllum nær og fjær gleðilegra jóla og hafið það sem best yfir        .
hátíðirnarBrosandi






Tók þessa mynd í dag þegar við fórum í jólagöngutúr með alla hundana okkar :) það er bara fallegt landslagið hérná í Flóahreppnum !
 
.... Es, Jólakveðjur eru vel þegnar hérna fyrir neðan, en ég tek samt svo sannarlega við skemmtilegum jólakortum Hlæjandi

Pössun og allt ađ gerast fyrir utanlandsferđ :)Jóhanna

Mig vantar enn pössun fyrir :Ljóna, Lejon, Löve, Nilfisk, Zorro, og Jóel . Þeir geta ekki verið einir í 2 vikur  .... :) sjálfboðaliðar gefi sig fram :)

En annars er ekkert að frétta... Við sitjum hérna Ég Logan Loverboy, Jóel, Björn, Maggi,Villi og Edda.... Þeir eru að fara á kostum og þetta stefnir í gott kvöld þar sem ég er veðurteft.... Hlæjandi


En Ingimar á Ytra!! þar sem ég hef haft veður af því að þú komir stundum hérna í heimsókn þá ætla ég að setja inn mynd sem ég tók í sumar af mér og Bikar mínum :)

Dúllan !Jóhanna

Mér finnst þessi mynd eitthvað það fallegasta sem ég hef séð :) myndin segir allt sem segja þarf Koss


Korter í ţrjú gćjarnir!!!Jóhanna

Hver kannast ekki við pirrandi korter í þrjú gæjana??? hérna eru aðferðir fyrir kurteisar stúlkur sem kunna ekki að vera fjandsamlegar til að losna við þá !!

Þú gefur honum númerið hjá óþolandi vinnufélaga.
-
Í flestum tilfellum losnar þú við manninn. Svo getur þú skemmt þér við tilhugsunina um símtalið sem mun eiga sér stað síðar um nóttina þegar þú verður steinsofandi heima...

Segir : Mikið er ég fegin að þú sýnir mér áhuga.
-Ég er einmitt hérna til að leita að föðurímynd fyrir ofvirkan tíu ára son minn. Þetta virkar á nánast þá alla. Margir karlmenn eru með fælnisradar á töfraorðin þrjú : Ábyrgð, skylda, faðerni. Það skaðar ekki að láta hugmyndina um þörf á gífurlegi þolinmæði fylgja með.

Útskýrir fyrir honum að þú sért frekar kvöldsvæf
- og lítið fyrir eftirpartý en maðurinn þinn hafi kannski áhuga - og bendir honum glaðlega á stærsta dyravörðinn. Ef hárfínar athugasemdir þínar skila ekki neinu þá er alltaf möguleiki að tilhugsunin um stærra karldýr geri það.

Spyrð hvort hann eigi ekki smokka.
-Þar sem þú hafir klárað alla þína í gær. Flestir eðlilegir einstaklingar myndu fá hroll við þessari spurningu. Ef hann forðar sér ekki hratt eftir þetta þá er ráðlagt að taka hratt til fótanna, tala við dyravörð eða hringja í alla stærstu frændur þína!

Ég á lítinn snilling :DJóhanna

Já hann er bara fjörugur og skemmtilegur hann Morris, Morrison, eða Morris minor Ullandi
En ætlaði eiginlega bara að setja inn myndir fyrir þig Ragga til að reyna að fá kallin til að passa fyrir mig um jólin HlæjandiHlæjandi Ég og Morris vorum að spjalla og hann sagði mér að honum langaði svoooooo að fara í Mosfellsbæinn um jólin...... ! Eeeeen.... ef að Ragga og Maurice geta ekki tekið hann þá bara fyrstur kemur fyrstur fær, mig vantar pössun fyrir hann í 2 vikur, frá 16. des til 30. :) Þarna koma félagar BHSÍ sterklega til greina og þar á eftir má fólk passa hann sem kann að fara með hunda! já og hana nú :) hinir fá sko ekki að hafa þennan snilling hjá sér í svona langan tíma !

    



Takk fyrir takk..... ;)

Aldurinn fćrist yfir....Jóhanna

Ein spurning.....

Í dag var ég að keyra frá Reykjavík... ég var að hlusta á fm 957, lít svo á klukkuna og sá að hún var að detta í 7. Þá stillti ég á RÁS 2 .....




Eru þetta ekki greinileg ellimerki ???

Gaman gaman :) og svo vil ég fá svör gott fólk :)Jóhanna

Miðnafnið mitt:
2. Aldur minn:
3. Er ég Single or Taken:
4. Uppáhalds iðja:
5. Uppáhalds lagið mitt:
6. Hörð eða mjúk:
7. Dirty eða Clean:
8. Er ég með Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu mínu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli*engin pressa*?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig*auðvitað*?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sef ég?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

Ekki feimin við að senda mér ;)

Stutt en ánćgjulegt og ákaflega jákvćtt og gleđilegt blogg fyrir ţig Edda mín :)Jóhanna

Alltaf jafn gaman að vera til :) það er eitthvað svo skemmtilegt við prófstress ... En lífið leikur við mig þessa dagana og allt gengur svo vel ! mér gekk alls ekkert illa í prófi áðan og raunar gengur mér allt í haginn....

hmmm.....

Minni á Gestabókina!!! og svo eru alltaf að koma inn nýjar myndir gott fólk :)

Ég vildi ég hefđi svona hćfileika...Jóhanna

Var að passa litlu frændur mína sem eru snillingar :) þeir voru hjá mér föstudag og laugardag ! og allt gekk svosum vel enda yndisleg börn.... þangað til það átti að fara að sofa...... sá yngri grenjaði í tvo tíma.. þvílíkur næturskelfir.... sá eldri sofnaði þannig að hann hélt fyrir eyrun en ég öfundaði hann ekkert lítið... hann steinsvaf á meðan að hundarnir voru meira að segja farnir að gefa frá sér hljóð sem ég hef sjaldan og jafnvel aldrei heyrt... ! úff... Pabbi flúði á milli herbergja á neðstu hæðinni! Manni bróðir svaf heldur minna en meira og mamma var sett í það verkefni að þagga niður í prinsinum.... gott að hafa svona 20 ára reynslu eins og hún.... takk mamma :* svo vaknaði sá eldri nokkrum sinnum en alltaf náði hann að sofna strax aftur... ég óskaði þess heitast í nótt þessa ágætu vökunótt að ég hefði þennan hæfileika að geta sofnað strax aftur eftir svona grenj....

en ef við eigum að líta á björtu hliðarnar þá er þetta frábær getnaðarvörn :)

ætla að leggja mig í smá stund..... ZzzzZZZzzz.....