Vúhú :DJóhanna

Myndir komnar úr afmælinu ;)

Fyllerí....Jóhanna

Já hversu oft hefur maður gert misgáfaða hluti yfir ævinna.. Og eins og sönnum íslendingi sæmir þá hefur maður skandalað í útlöndum. Því þegar maður er jú komin út fyrir landhelgina þá má maður ALLT!!

Einn góður dagur erlendis sem rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var að skoða myndaalbúm hjá ónefndri... ;)

Erum að labba á ströndinni þegar lítill og ljótur kanaríbúi býður okkur að kaupa miða í bátsferð... við vorum ekki alveg vissar .. en svo gerðist það.. töfraorðin : FRÍTT ÁFENGI :D:D:D jább! við komum !

Siglingin byrjaði vel, við pössuðum okkur að hafa sólarvörn með og sólgleraugun ;) hitt kemur að sjálfu sér einhvernvegin :) Að sjálfsögðu var fullt að ungu fólki í bátnum en alveg stórleiðinlegt! það var ekki að spurja að því, við drukkum bara meira :) Ég fór niður á barinn og spurði um sangría! Fékk svo þennan fína bleika drykk... Sagði svo við hann í minni fínu spænsku : No ! i want sangria amigo... - "you want sangria?" -"jess!" ahh... ok... ! svo fór hann undir borðið náði í alveg snaráfengan glæran drykk og sturtaði í glasið hjá mér... ferðirnar á barinn eftir það eru svona frekar í móðu en siglingin var 8 tímar og eflaust var útsýnið stórfenglegt ! Við skemmtum okkur konunglega en meðan ég var upptekin á barnum að spjalla við skipstjóran var Magga í einhverjum dónaleikjum með útlendingunum... ;)
Svo fékk ég góða hugmynd eða þannig... kíkti upp á dekk og man að sjálfsögðu lítið eftir þessu... en þetta náðist á mynd....... og meira að segja náðist þessi afar skondni kall og ég á video! en ljóskan eyddi því óvart útaf myndavélinni :D en leiðinlegt....

Mynd segir meira en þúsund orð....

Já... hvað getur maður sagt....



Tja... Afmæli eftir nokkra daga :D:D:DJóhanna

Sko... gefum okkur það að þú ágæti lesandi vinnir við fiskiðnaðinn, sem er bara atvinna eins og hvað annað og bara fínt starf, þá finnst mér ekki líklegt að þú fáir að heyra þetta samtal á fylleríi eða þú ert einhversstaðar að skemmta þér fyrir utan vinnuna! semsagt ert ekki í frystihúsagallanum!!

Hérna við hvað vinnuru ?
-ég er í frystihúsinu í Þorlákshöfn
vó ókei! hei veistu ég sá einu sinni fisk mar... ! hann var alveg þokkalega stór!
-já frábært... ég hef líka séð fisk, er að vinna við það!
-já svo veit ég um vin minn hann var á sjó að veiða fisk, hann var á togara og þarf að gera að fiskinum, þú veist flaka hann og gera og græja...
já einmitt, ég nenni samt ekki að tala um einhvern fisk! ég vinn við það!! gætirðu plís talað um eitthvað annað??

Gott fólk, þetta er líka svona með fólk sem vinnur við lögreglustörf !! ef þið hittið löggu á djamminu!!! EKKI !! koma með eitthvað svipað eins og HEY þú stoppaðir mig um daginn.. bla bla bla bla blabla!!! og annað sem er lame ass brandari !!! notarðu handjárnin!!!


nei... nota þau aldrei... þau eru bara til sýnis.. til að vera kúl....:)

en við skulum ekki grenja yfir þessu ;) alltaf gaman að djamma.. bara ekki á fjölförnum stöðum ;)

en.. víííí.. er á norður leið Hrund mín :D:D:D búin að hóta að hætta ef ég fæ ekki frí ;)