Jóhanna
Já kæru vinir nær og fjær :) Þá eru jólin að ganga í garð enn eitt árið. Ég er ekki frá því að skötuveislan hjá Nonna frænda hafi ýtt mér endanlega inn í heim jólanna :)En að öðru hún Emma fékk að fara þann 14. desember og er hún nú á góðum stað í fallegri kistu sem við keyptum handa henni. Það er dálítið ótrúlegt að hún skuli vera hundur númer 2 á 2 árum sem ég þarf að láta svæfa, þetta venst nú samt aldrei held ég alltaf jafn sárt að kveðja vini sína sem hafa glatt mann skilyrðislaust alla ævidaga sína. Mig langar að láta fylgja texta sem segir allt sem segja þarf og er smá huggun :)
Hérna megin við himnaríki er staður sem kallast Regnbogabrúin
Þegar dýr sem hefur verið sérstaklega nákomið okkur deyr þá fer það til Regnbogabrúarinnar. Þar eru engi og hólar fyrir alla þessa sérstöku vini okkar þar sem þau geta hlaupið og leikið sér saman. Þar er nægur matur, vatn og sólskin og vinum okkar er hlýtt og líður vel.
Öllum dýrum sem hafa verið veik og gömul fá heilsuna og kraftinn aftur og þau sem voru meidd og örkumla eru gerð heilbrigð aftur eins og við munum eftir þeim í draumum okkar þegar fram líða stundir. Dýrin eru hamingjusöm og sátt, fyrir utan eitt, þau sakna sérstaks vinar sem varð eftir hinum megin.
Þau leika sér öll saman en sá dagur kemur að eitt þeirra stoppar og horfir í fjarska. Björtu augun eru einbeitt; ákafur líkaminn titrar. Allt í einu er hlaupið frá hópnum, á harðastökki yfir grasið, fæturnir hreyfast hraðar og hraðar.
Það hefur sést til þín og þegar þið, sérstöku vinirnir hittist loksins þá fallist þið í faðmalag við gleðilega endurfundi og þurfið aldrei að skiljast að aftur. Hamingju kossar rigna yfir andlit þitt; hendur þínar strjúka ástúðlega yfir höfuðið á honum og þú lítur enn einu sinni í græskulaus augu hundsins þíns, svo langt síðan hann hvarf úr lífi þínu en aldrei úr hjarta þínu.
Þá farið þið yfir regnborgabrúnna saman...
Brostin hjörtu...Jóhanna
Já það verða þung skrefin sem tekin verða á eftir þegar við kveðjum hana elskulegu Emmu mína. Hún slasaðist í vikunni og tekin var sú erfiða ákvörðun að kveðja hana í hinsta sinni.
Það er erfitt að sætta sig við svona ákvörðun og mikið á maður eftir að sakna perlunnar sinnar... Öll þau skipti sem maður hefur komið heim eftir erfiðan og ljótan dag í vinnunni þá hefur tekið á móti manni brosandi krumpað andlit með sitt brúna eyra og dillandi skott sem gat meitt mann, kætin var svo mikil stundum að fá mann heim og þá gleymir maður öllu :) ég á meira að segja eftir að sakna allra hlutanna sem manni fundust stundum hálfbagalegir, líkt og slefpollarnir eftir að hún fékk að drekka, krúttlegu augun þegar hún var að sníkja mat hjá manni. Svo öll þau skipti sem hún lagði höfuðið á lærið á manni því hún skynjaði svo ótrúlega vel hvernig manni leið, já hún hafði einstakt lag á að gera allt gott...
Elsku Emman mín, hvíldu í friði ég mun sakna þín óendanlega mikið og heiðin mun aldrei verða söm án þín....

Weep not for me though I am gone into that gentle night.
Grieve if you will, but not for long upon my soul's sweet flight.
I am at peace, my soul's at rest. There is no need for tears.
For with your love I was so blessed for all those many years.
There is no pain I suffer not, The fear is now all gone.
Put your pain out of your thoughts for in your memory I live on.